"The Winter is coming, knit faster" er búið að vera mottóið mitt síðan í ágúst á síðasta ári, þegar ég byrjaði að prjóna þennan hringtrefil. Ég hugsaði að það yrði nú alveg örugglega tilbúið áður en veturinn myndi skella á. En kanski gat ég með því að prjóna það svona hægt um leið hægt á að veturinn myndi koma, því þrátt fyrir að það hafi snjóað einn dag fyrir jólin, er ekki hægt að segja að það hafi verið mikill vetur hér í Þýskalandi.
Ég hef ekkert prjónað síðan ég prjónaði handa stráknum mínum hringsjal á tvo prjóna úr Debbie Bliss ull 2012, sem ég svo tengdi í hring. En ullinn hnökraði eftir stutta notkun og var alls ekki gott val fyrir trefil. Þannig ég vona að þetta garn haldi sér betur. Hér notaði ég Bingo frá Lana Grossa sem er 100% merinoull og dásamlega knit pro hringprjón númer 5. Ég elska heklunálarnar frá þeim og ekki eru prjónarnir síðri.
Als ich angefangen habe diesen Rundschal im Herbst zu stricken, habe ich gehofft ich wäre fertig bevor der Winter da wäre, und auch wenn er vor kurzem fertig war, ist der Winter immer noch nicht da gewesen ;) so geschafft.
4 hnotur af mjúku og girnilegri og mjúkri merino ull frá Lana Grossa. Það sést vel á myndinni hvernig liturinn hefur þessa marmara eða sprengdu áferð. Blátt, grátt, grænt, brúnt eftir ljósi og birtu. En er þetta litur númer 207 og kallast olive.
Die verwendete Wolle war die Bingo Melange von Lana Grossa, 100% merino wolle in der Farbe Olive oder auch Schlamm genannt.
Lana Grossa Bingo melange - olive
Ég notaði ekki alveg allar hnoturnar, þegar trefillinn var orðinn ca. 25cm á breiddina átti ég eftir tæpa hálfa hnotu, og þar sem ég vissi ekki hvað færi í affellinguna ákvað ég að stoppa þá. Þessi breidd kemur líka mjög vel út, þar sem hægt er að vefja honum tvisvar um hálsinn kemst kuldaboli ekkert inn. Svo núna á ég smá afgang og langar að hekla húfu í stíl :)
Þar sem ég elska heklunálarnar mínar frá Knit Pro, fékk ég mér prjóna þaðan líka sem hægt er að skrúfa á svona hringprjónasnúru sem er frá Lana Grossa. Þessi snúra er þannig að hún vindir ekki upp á sig og flækist fyrir manni og kallast það að hún sé minnislaus á þýsku, en hún gleymir fljótt hvernig hún var upprúlluð í pakkningunni og það var draumur að prjóna sjalið með þessu. Ég tók í þetta öðru hvoru með heklinu og er þetta í raun fljótprjónað.
Ich habe etwa 3 und halb Knäule verwendet, den Rest möchte ich für eine passende Mütze verwenden, aber die wird gehäkelt, da es schneller geht. Da ich die Häkelnadeln von Knit Pro liebe, habe ich mir natürlich Rundstricknadeln von denen auch geholt, und die sind Wunderbar.
Aller anfang ist schwer
Í byrjun reyndi ég við möbius uppfitjun, sem ætti að gefa sjalinu snúning, en það var eitthvað svo erfitt að ég hætti við það og rak allt upp og fitjaði upp allar lykkjurnar og prjónaði munstrið í hring eftir hring :) Það er svo þægilegt við að prjóna í hring, að það má stoppa alls staðar og þarf ekki að klára hverja umferð. Síðan notaðist ég við frankfurtarhnútinn til að tengja nýju hnotuna við og það var líka frábær aðferð, því þá eru engir endar í lokinn sem þarf að fela og ganga frá.
Anfangs wollte ich die Möbius Methode für den Aufschlag verwenden, aber die ging nicht so gut und alles war so eng, dann wurde alles aufgerippelt und ein normaler Anschlag verwendet. Es wird sowieso wahrscheinlich nie offen getragen, also habe ich mir die Mühe gespart.
Smám saman varð hann stærri og stærri
og enn stærri og fallegri. Hér fór ég að horfa á hnotuna og hætti ekki fyrr en hún var búin eða komin vel á leið
Síðan var fellt af og gengið frá endum og mátað.
Auch wenn ich in August letzen Jahres angefangen habe, und den ersten Knäul schnell fertig gestrickt hatte, wurde es etwas langsamer mit dem zweiten und dem halben dritten Knäul, da ich in der Zeit mit so vielen Häkelprojekten beschäftigt war. Aber dann nach Weihnachten als ich in Januar wieder damit angefangen habe, ging es viel schneller und dann endlich geschafft :)
Gína mátaði þetta fyrir mig.
Keine Kommentare:
Kommentar veröffentlichen
❤❤❤ Thank you for taking your time to leave a comment ❤❤❤